• Stefnumótun og ráðgjöf.

  • Fjármál sveitarfélaga og/eða einstakra stofnana á þeirra vegum.

  • Endurskipulagning stjórnkerfa.

  • Úttektir og stefnumótun í fræðslumálum.

  • Hafnamál, atvinnu- og byggðamál.

  • Greining sérstöðu og sóknarfæra.

Logo Ráðrík

Ráðgjafafyrirtækið Ráðrík ehf. hefur starfað frá ársbyrjun 2015. Eigendur hafa langa og margvíslega reynslu af sveitarstjórnarstörfum og af vinnu með þeim stofnunum og fyrirtækjum sem starfa á vegum sveitarfélaganna í landinu. Ráðrík telur sér því kleift að bjóða ráðgjöf/vinnu á sviði:

Úttektar og stefnumótunar vegna fræðslumála, fjölmenningar, félagsmála, hafnarmála, fjarskipta og íþrótta- og æskulýðsmála. Einnig fjármála sveitarfélaga og/eða einstakra stofnana á þeirra vegum sem og endurskipulagningar stjórnkerfa. Ráðgjöfin getur verið bæði fagleg og fjárhagsleg. 

Ekki hika við að hafa samband ef þú ert með eitthvað annað í huga eða þarft þjónustu á öðrum sviðum. Ráðrík er opin fyrir öðrum verkefnum og vill gjarnan skoða þau með ykkur.

  • Fyrirlestrar og námskeið

    Fyrirlestrar og námskeið

    Eftir fyrirlestur Svanfríðar á háskólatorgi um kosningar kvenna til sveitarstjórna. Ráðrík heldur námskeið fyrir sveitarstjórnarfólk og vill eiga samstarf um námskeið við sveitarstjórnir og samtök þeirra.

  • Samningagerð

    Samningagerð

    Guðný skrifar undir samning um þjónustu við fatlað fólk í Eyjafirði.

  • Hafnir og sjávarútvegur

    Hafnir og sjávarútvegur

    Um tíma voru allir eigendur Ráðrík ehf., Eyrún, Guðný og Svanfríður, í stjórn Hafnasambands Íslands. Mynd tekin í tengslum við hafnasambandsþing haustið 2014.

Fréttir